Með ást í pósti
Pósturinn býður öllum hjartaknúsurum landsins að senda ástarbréf frítt í tilefni af Valentínusardeginum. Þú getur sett bréfin í hjartalaga póstkassann í Kringlunni eða skilað þeim á aðra afgreiðslustaði Póstsins um allt land út Valentínusardaginn.
Ástin svífur yfir vötnum um þessar mundir og ákvað Pósturinn að leggja sitt af mörkum og aðstoða Amor við að hugsanlega kveikja smá ástarbál í brjósti þjóðar. Settur var á laggirnar hjartnæmur Valentínusarviðburður þar sem fólk er hvatt til að skrifa ástarbréf og póstleggja frítt. Pósturinn hefur sett upp hjartalaga póstkassa í Kringlunni ásamt kortum og þar gefst fólki tækifæri á að skrifa og senda ástarbréf. Að auki standa nú yfir dagar í Kringlunni sem bera yfirskriftina ,,Allt fyrir ástina" þannig þar er mikið um að vera og hjartapóstkassinn passar vel þar inn.
,,Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt í kringum Valentínusardaginn og ákváðum að gefa tveimur gömlum póstkössum nýtt líf með því breyta þeim í hjarta, og þannig fæddist hugmyndin. Við bjóðum því öllum hjartaknúsurum landsins að senda ástarbréf frítt með Póstinum um helgina og á Valentínusardaginn en um leið viljum við bara hvetja alla til að senda falleg skilaboð á ástvini sína í hvaða formi sem það er" segir Vilborg Ásta Árnadóttir, markaðssérfræðingur hjá Póstinum.
,,Hér áður fyrr voru bréfsendingar mjög vinsæl leið meðal fólks til að tjá ást sína hvert á öðru en í tæknivæddum nútímaheimi eru ótal leiðir til að koma ástarjátningum og öðrum skilaboðum frá A til B. Við lítum þessa þróun jákvæðum augum en bréfin eiga sér langa sögu innan Póstsins og það er eitthvað svo mikil nostalgía í því að skrifa og fá handskrifuð bréf, tala nú ekki um ef það er einlægt eða eldheitt ástarbréf!” segir Vilborg.
Fólk getur sett bréfin í hjartalaga póstkassann í Kringlunni eða skilað þeim á aðra afgreiðslustaði Póstsins um allt land út mánudaginn.